hotel photo

Myndir
Apartments Diamant
Herbergi
Fyrir utan
Stofa
Hotel Diamant

Apartments Diamant

Smáhýsin tilheyra glæsihótelinu Diamant og standa í hlíð rétt við hótelið. Glæsileg aðstaða hótelsins er til reiðu fyrir smáhýsagesti. Stór sundlaugargarður með barnalaug, leiksvæði og skemmtidagskrá fyrir börnin. Barnagæsla er í boði og starfræktur er barnaklúbbur á vegum hótelsins með alls konar uppákomum. Ein besta líkamsræktarstöðin í Porec ásamt heilsulind með nuddpottum, gufubaði, ljósabekkjum og heilsunuddi ef fólk vill láta dekra við sig. Hér er einnig að finna veitingastað, bar og verslun er í nágrenninu. Smáhýsin þykja ákaflega vel búin, öll eldhús eru t.d. búin uppþvottavél, og eru ýmist með einu eða tveimur svefnherbergjum. Húsin eru með loftkælingu, sjónvarpi,síma, öryggishólfi og ýmist með svölum eða verönd. Staðsetningin er mjög góð í einungis 15-20 mín. göngufjarlægð frá miðbænum. Gisting sem hentar fjölskyldufólki afar vel. Athugið að samkvæmt alþjóðareglum þarf að skila hótelherbergi/íbúð fyrir kl: 12 á brottfarardegi.

Aðbúnaður á gististað
Móttaka Verslunca 700m
Opnunartími móttöku24 klst InternetaðstaðaJá, í móttöku
Fjöldi herbergja/íbúða219 Sjónvarp í herbergi/íbúð
Fjöldi hæða2 Þrif, oft í viku1 sinni
LyftaNei Handklæðaskipti, oft í viku3 sinnum
Veitingastaður Loftkæling
Bar Öryggishólf
Garður Te- eða kaffivél
Sundlaug Hárþurrka
Barnalaug Sími á herbergi/íbúð
Sundlaugarbar Líkamsræktaraðstaða
Barnaleiksvæði Aðstaða fyrir fatlaðaGott
Tennisvöllur Þvottaaðstaða
Fjarlægð frá strönd750m BarnarúmJá gegn leigu
Fjarlægð frá miðbæ15-20 mín gangur


powered by Osprey Software, © 2003-2007